Logo

Vaktstjóri í eldhúsi / Sous Chef

Enginn umsóknarfrestur
Fullt starf

Vaktstjóri í eldhúsi / Sous Chef

Center Hotels leitar að jákvæðum og duglegum einstaklingi í starf vaktsjóra í eldhúsi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Daglegur undirbúningur og matreiðsla
  • Leiðbeina og þjálfa starfsfólk í eldhúsi
  • Yfirumsjón á vakt og passa að öll verkefni séu kláruð og öllum gæðastöðlum sé fylgt.
  • Ber ábyrgð á frágangi og geymslu á matvælum á vakt
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Rík þjónustulund
  • Fagleg og skipulögð vinnubrögð
  • Reynsla úr sambærilegu starfi í eldhúsi
  • Menntun í matreiðslu æskileg
  • Þekking á hreinlætis og gæðastöðlum (HACCP)
  • Geta til að vinna undir álagi
  • Almenn tölvukunnátta

Vinnutími er 10:00-22:00 eða 11:00-23:00 á 2-2-3 vöktum. Umsóknarfresturinn er opinn þangað til rétti einstaklingurinn finnst. Við munum hefja viðtalsferlið fljótlega.